Ég heiti Kristín Þórsdóttir en er alltaf kölluð Stína. Ég er svo lánsöm að hafa 6 börn í mínu lífi, 3 sem að ég gekk með sjálf og 3 sem að ég fékk til mín þegar að ég kynntist manninum mínum. Ég er elst af fjórum systkinum og því vön stórri fjölskyldu með öllu því sem fylgir, það er allavegana á hreinu að mér á ekki eftir að leiðast. Ef ég ætti að lýsa persónuleika mínum þá væri það svona: heiðarleg, traust, hress, skapstór, mjög kaldan húmor, opin, skapandi, pínu skrítin, náttúrubarn, ljóðaunnand og elska að vera í hópi fólks en líka ein með sjálfri mér. Ætli ég sé samt ekki best geymd í sveitinni þar sem að ég fæ að vera úti í náttúrunni.
Ég útskrifaðist sem hársnyrtir árið 2007 og var handviss um að þar væri ég komin til að vera. Þegar ég var þrítug fékk ég Dale Carnegie námskeið í afmælisgjöf. Ástæða þess var að ég gat ekki staðið fyrir framan fleiri en þrjár manneskjur í einu án þess roðna og stama. Ég sé alls ekki eftir því, enda hef ég ekki þagnað síðan.
Maðurinn minn heitinn, Kristján Björn, greindist með krabbamein árið 2006 og er óhætt að segja að sá tími hafi þroskað mig mikið sem manneskju. Við vorum öflug að vekja athygli á ungu fólki og krabbameini og sat ég í stjórn Krafts í tvö ár, þ.á.m. eitt ár sem varaformaður. Kristján Björn lést árið 2017 eftir 11 ára baráttu.
Haustið 2017 var ég stödd á tímamótum og vissi ekki hvaða stefnu ég ætti að taka í lífinu. Ég hafði lengi hugsað um að fara í nám en vissi ekki hvað það ætti að vera. Það var þá sem að vinkona mín sagði mér frá markþjálfunarnámi hjá Evolvia. Mér fannst ég ekki hafa neinu að tapa og skráði mig í námið. Í dag er ég útskrifaður ACC markþjálfi.
Ég fór einnig í framhaldsnám í markþjálfun í Evolvia. Í febrúar 2019 ákvað ég að fara læra að verða sexcoach, kynlífsmarkþjálfi. Ég var í 2 ár í fjarnámi í Sexcoachu og útskrifaðist þaðan í febrúar 2021. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem viðkemur kynlífi og þegar ég var yngri langaði mig til þess að vera kynfræðingur. Þarna fór ég aðra leið og lét draum minn rætast. Mér finnst mikilvægt að tala opinskátt um kynlíf og ég hef lært það nú í starfi mínu hvað það er mikilvægt. Það gleður mig að geta hjálpað fólki með allt sem viðkemur að kynlífi.
Sumarið 2019 stofnaði ég fyrirtækið mitt Eldmóður fræðslusetur ehf. En í dag heitir það Eldmóður ehf. og erum við Kiddi, sambýlismaður minn, eigendur af því í dag og rekum það í sameiningu.
Einnig er ég kennari í Móum, Móar studio, og er þar með tíma og námskeið ásamt því að vera með aðstöðu til þess að taka á móti einstaklingum í viðtöl og heilun. Í Móum fær maður rými til að vera allskonar og öllum er fagnað.
Árið 2021 útskrifaðist ég úr námi í NA-Shamanisma (Otter Dance School of earth medicina). En eftir það hef ég verið að taka á móti fólki í heilun ásamt því að vera með Fornheilunar viðburði í hverjum mánuði með Láru Rúnarsdóttur eiganda Móar studio. Þetta nám hafði mikil áhrif á þroska minn sem manneskju og lífsviðhorf.
Í október 2022 lenti ég heldur betur á þessum blessaða vegg sem að svo margir hafa talað um. Já, manneskjan sem að hafði mögulega ekki neinn skilning á orðinu kulnun fékk það heldur betur óþvegið og þurfti að kyngja öllum sínum fordómum á augabragði. Ég var ótrúlega lánsöm og komst að á Reykjalundi og var þar í 14 vikur. Það gaf mér heldur betur mörg verkfæri í kistuna mína. Ætli mesti lærdómurinn af þessu öllu hafi ekki verið sá hversu mikilvæg heilsa manns sé, andleg og líkamleg. Og ef að maður hlustar ekki á allar viðvörunarbjöllurnar sem að kviknar á gerist þetta, heilinn hreinlega slekkur á sér. Fyrir manneskju með bullandi ADHD var ansi erfitt að hægja á en mér var ráðlagt að það besta sem ég gæti gert til þess að ná aftur heilsu væri að gera eitthvað sem að nærir andann. Eitthvað sem að lætur mig slökkva á óstýriláta huga mínum. Ég er allavegana búin að komast að því að sköpun nærir mig, og það er eitthvað sem að mér var ráðlagt að gera meira af, allt sem að lætur mig gleyma stað og stund. Sem er ástæðan fyrir því að ég er að búa til óróa og draumafangara. Það einfaldlega tæmir hugann.
Kríustígur- KS er það sem að ég og maðurinn minn köllum sköpun okkar. Bæði erum við að skapa saman og í sitthvoru lagi. Hann Kiddi er smiður og er því mjög handlaginn og ég fæ allskonar hugmyndir oft sem að hann getur svo framkvæmt. En svo er ég að skapa draumfangara og óróa sem að eru gerðir úr efniviði sem að ég safna frá mínum uppáhalds stöðum víðsvegar um landið. Ég tengist náttúrunni á djúpstæðan hátt. Þar finn ég mína innri ró. Með því að skapa þessi verk er ég að tengja náttúruna og frumefnin inn á heimilin.
Lífið er allskonar og ég hef svo sannarlega upplifað margt. En minn ásetningur fyrir lífið er að taka það góða úr því slæma. Ég hef öðlast mesta lærdóminn út úr erfiðleikum sem ég hef gengið í gegnum og hef reynt að nýta mér það í starfi mínu.
Það er minn eldmóður að aðstoða fólk við að vaxa og ná markmiðum sínum.
– Stína
Tímabókanir í síma: 693-7224 eða sendu mér fyrirspurn.