Fyrirtækja markþjálfun
Markþjálfun er öflugt verkfæri sem gefur starfsfólki tækifæri til að efla sig jafnt í starfi sem í einkalífinu.
Hæfileikar hvers og eins þurfa að njóta sín og það hvernig fólk nálgast verkefni sín getur skipt sköpum fyrir árangur innan fyrirtækis. Sýnt hefur verið fram á að markþjálfun eykur árangur starfsmanna og stjórnenda.
Mörg fremstu fyrirtæki heims nota markþjálfun nú þegar. Þau fyrirtæki hafa uppgötvað að samtal við starfsfólk, uppbyggileg endurgjöf og virk hlustun er vænlegra til árangurs en stjórnun í fyrirskipunarstíl.
Með markþjálfun er skapað umhverfi þar sem samskipti eru heiðarleg, skilvirk og endurspeglast af umhyggju. Aðferðin hefur hjálpað mörgum að nýta þá styrkleika sem býr innra með því og ná þannig að sinna starfi sínu sem best.
Aukin starfsánægja
Markþjálfun getur bætt stjórnunarhætti, byggt upp markvissari einstaklings- og hópavinnu og hvatt til betri og uppbyggilegri samskipta. Allt leiðir það til verðmætasköpunar.
Á sama hátt getur markþjálfun aukið starfsánægju, dregið úr starfsmannaveltu og komið í veg fyrir kulnun í starfi.
Reynslan hefur sýnt að þau fyrirtæki sem þekkja starfsmenn sína vel, styrkleika þeirra og veikleika og hvetja þá til dáða, uppskera margfalt.
Með markþjálfun gefst þér tækifæri til að kynnast þér betur, koma auga á þau tækifæri sem standa þér til boða í lífinu, öðlast skýra stefnu og vinna á styrkleikum þínum.
Það er minn eldmóður að aðstoða fyrirtæki við að efla starfsfólk sitt.
Fyrirtækja markþjálfun hentar vel til að:
Efla starfsfólkið
Finna leiðir til að nýta styrkleika hvers og eins
Bæta samskiptin á vinnustaðnum
Veita uppbyggilega endurgjöf
Auka starfsánægju
Koma í veg fyrir kulnun í starfi